New Page 1 New Page 1

Ég

Nafn:Sæunn Pétursdóttir

Aldur: Bráðum 17 ára

Staður:Reykjavík

Skóli: Menntaskólinn við Sund

MSN: gellez@hotmail.com

Tenglar

Bónus:

Inga

Elísa

Harpan

Folah síðan

 

MS:

Bára

Dögg

Andrea

Anna María

Anna Margrét

Bekkjarsíða 1-J

Eva Sif og Salóme

 

Aðrar síður:

Rugl.is

Hugi.is

Belja.is

Msund.is

Flass.net

Djamm.is

Batman.is

 

New Page 1
   

New Page 1
<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Wednesday, March 09, 2005
:D

Halló sæta fólk!!

Ég er hress í augnablikinu, enda þíðir ekkert annað! Skólinn er komin á fullt, nóg að gera þar, þar sem ég hef misst af svo miklu vegna veikinda.
Var búin 12 í dag, Ásgeir stærðfræði var veikur, ekkert slæmt. Búnað vera með henni Ingu í allan dag, kíktum á bílasölur, fórum í smáralindina, ég fór til tannsa og sonna. Svo fórum við á bílaþvottastöð með Brand Ara (bíllinn), *Hahaha, einkahúmor* þar var ég ein inní bílnum þar sem Inga þurfti að fara útúr til að ýta á einhvern takka, ég get nú alveg sagt að ég hef skemmt mér betur, þar sem sumir voru alltaf að horfa á mig og hlæja, ekki fallegt:( 
Nú er ég að horfa á Borgó rústa MS í gettu betur, í þessum töluðu orðum er staðan 35-15 fyrir þeim, enda með hörku lið og sjúkt klapplið!

Allavega ég ætla að fara að gera eitthvað að viti!!
Sæunn:)

Posted at 12:45 pm by Sæunn
Enginn búin að tjá sig  

Friday, March 04, 2005
:D

Skólinn í dag er búin klukkan 11:10! Yndislegt!

Þá er planið að læra til fjögur og fara svo að eyða smá penginum:)

Farin í tíma;)
Sæunn - sem er alltíeinu farin að nenna að læra heima:D

Posted at 01:42 am by Sæunn
Enginn búin að tjá sig  

Thursday, February 24, 2005
Halló

Halló sæta fólk;)

Föstudagur að koma, yndislegur dagur hreint út sagt. Skóli til 13 og svo vinna frá 14 til svona 20!
Laugardagurinn verður langur, er að vinna frá 9-24...rosa gaman! Það er talning nirðí vinnu. Það er reyndar ekkert svo slæmt, fæ allavega borgað;)

Næsta vika verður svo erfið.
-Stærðfræðipróf
-Dönskupróf
-Efnafræðipróf
mjög líklega allt á miðvikudaginn og svo á föstudaginn á ég að skila 5-7 blaðsíðna ritgerð um jarðsögu Vestfjarða, gæti það hljómað verr, held ekki!!
Já gaman að segja frá því að ég skil ekki neitt í þessari stærðfræði og ég er búin að vera veik svo ég kann ekki allt fyrir prófið svo er glósupróf í dönsku úr textum sem ég á eftir að lesa, ég veit, ég er letingi sem nennir ekki að læra, svo ég kallaði þetta uppá mig:S

En endursýningin af Americas next top model er að byrja, svo ég ætla að kveðja að sinni!
Njótið helgarinnar:*

Sæunn letingi:/

Posted at 03:46 pm by Sæunn
Jájá,einhverjir (2)  

Tuesday, February 22, 2005
Jæja...

Ég kem alltaf aftur!!

Ákvað að lífa gömlu síðuna mína við, þessi finnst mér allaf best! Held að það sé afþví að það eru ekki margir með svona síðu og hún er frábrugðin öðrum!

Annars er allt ágætt að frétta bara. Árshátíðarvikan var í seinustu viku, gott að fá frí frá bókunum. Svo var árshátíðin sjálf á fimmtudaginn, hún var fín, maturinn var reyndar ekki góður. Fyrirpartýið var frábært. Sálin var að spila, get ekki sagt að ég muni mikið eftir því!! Á föstudaginn var svo engin skóli, sem betur fer.

Núna er ég annars veik heima, nældi mér í streptokokka í hálsinn, ofsalega gaman, var svo kvalin í hálsinum mínum á Sunnudagskvöldið að pabbi fór með mig uppá Slysó í kringum hálf ellefu. Þar var ég svo til eitt. Fékk svo lyfseðil þar uppá lyf við kokkunum, en þar sem öll apótek voru lokuð fékk ég töflur uppá slysó sem voru samt ekki eins og þær sem læknirinn ávísaði. Nóttin var svo ágæt, ég svaf bara ágætlega og lyfin fóru vel í mig. Mamma kom sem með lyfin sem ég átti að fá um hádegisbil og ég tók þau, þau fóru svona skelfilega á magann minn að ég ældi þeim eftir minna en klukkutíma frá því að ég tók þau. Þá hringdi ég í mömmu og hún las sér til um þessi lyf mín og hringdi í lyfsalann, þá var þetta of stór skammtur fyrir mig, og ég tók lyfin aftur þegar mamma kom heim, þá tók ég eina töflu í staðin fyrir að taka tvær.
Ég get viðurkennt það að ég hef aldrei upplifað aðrar eins kvalir, ég gat ekki setið, staðið og varla legið. Ég lág útum öll gólf, gat ekki ælt og leið ömurlega. Þetta var svo sárt að ég var farin að gráta. Mamma var farin að hafa áhyggjur og hringdi útum allt. Svo fór hún uppá Slysó og fékk önnur lyf. Frá 18 til svona 21 voru verstu tímar lífs míns, sjitt, ég er hætt að hafa áhyggjur afþví að það sé vont að eignast börn, því það verður varla verra en þetta;)
Núna líður mér betur, nýju lyfin fara ekki svona illa í mig og allt er að batna.
Annars átti þetta nú ekki að vera svona langt. En ég ætla að fara að gera eitthvað:*
 

Posted at 06:10 am by Sæunn
Jájá,einhverjir (1)